Kjarrá

Velkomin í
Kjarrá

Kjarrá er efri hluti Þverá/Kjarrá. Hún er afskekkt og einkennist af ósnortinni náttúru. Áin er afar fjölbreytt, frá krefjandi gljúfrahyljum á neðri svæðum til aðgengilegri hylja ofar í Kjarrárdal og fjallsins.

Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við sales@starir.is

Almennar upplýsingar

Þverá/Kjarrá er ein gjöfulasta veiðiá landsins. Meðalveiði í ánni síðastliðin tíu ár er rétt undir 2000 löxum á ári og árið sem mest veiddist fór fjöldi veiddra laxa fram úr 4000. Besti veiðitími í ánni nær frá síðustu vikunni í júní og langt inn í ágústmánuð. Á undanförnum árum hafa bestu vikurnar í Þverá/Kjarrá gefið hátt í 600 laxa í ánnum tveimur.

Sjálf Kjarrá er um 45 kílómetrar að lengd og er veitt í henni á sjö stöngum á sjö svæðum sem veiðimenn færast á milli á hverri vakt. Í ánni eru 92 nafngreindir hylir sem bjóða upp á fjölbreytta veiði. Veiði í ánni er skipulögð í annað hvort þriggja eða sex daga hollum. Veiðin hefst á eftirmiðdegi fyrsta dags og lýkur á hádegi síðasta veiðidagsins. Einungis fluguveiði er leyfð í ánni og sleppiskylda á laxi utan eins smálax á stöng á dag.

Fyrsti vorlaxinn snýr aftur á heimaslóðir í lok maí. Þegar vor verður að sumri fjölgar laxagöngum jafnt og þétt þar til hámarki er náð í júlí. Laxagöngur halda áfram inn í ágúst þó þær séu smærri. Veiðitímabilinu lýkur í svo september þegar haustið kemur en því fylgt rigningar sem hleypa fjöri í veiðina. 

Veiðitímabil
Frá byrjun júní fram í fyrstu daga september.

Prime time
Frá seinni hluta júní til upphafs ágústs.

Stangir
Sjö stangir á sjö svæðum í róteringu. Veiðimönnum er velkomið að deila stöng.

Við mælum með þessum flugum
Silver Sheep, svartur og rauður Francis, Arndilly Fancy, Collie Dog, Green Brahan, Micro Hitch, Sunray Shadow og litlir kónar. Flugustærðir 12 til 18 eru algengastar.

Búnaður
Einhendur og litlar tvíhendur. Flotlínur.

Leiðsögumenn

Sérfrótt leiðsögumannateymi okkar er leitt af Gíma Gunnarssyni sem leiðsagt hefur í ánni um áratuga skeið. Allir leiðsögumennirnir okkar hafa veitt í ánni í mörg ár og munu gera sitt besta í að aðstoða stangveiðimenn á alla vegu á meðan dvöl þeirra stendur. 

Allir leiðsögumennirnir okkar eru enskumælandi og sjá gestum okkar fyrir akstri meðfram ánni á fjórhjóladrifnum bílum. Hverjum leiðsögumanni er almennt deilt af tveimur veiðimönnum en hægt er að óska eftir einkaleiðsögumanni.

Saga Kjarrár

Laxveiði hefur verið stunduð á Íslandi í margar aldir. Íslendingar voru fyrst kynntir fyrir laxveiði á stöng af enskum veiðimönnum sem komu til landsins á seinni hluta 19. Aldar.

Þverá/Kjarrá var ein af fyrstu ánum sem heldri Englendingar veiddu reglulega í. Margir hyljanna í Kjarrá/Þverá bera með sér þá arfleifð. Hylir á borð við Hambro, Stewart, Wilson og Prinsessurnar þrjár bera með sér þessi upphafsár stangveiði. Árið 1904 byggðu Englendingarnir veiðihús við ármynni árinnar sem stendur enn þó það sé ekki í notkun. Það veiðihús er enn kalla Enska húsið. Veiðimennirnir fluttu bækistöðvar sínar þá enn ofar í árkerfið að Kjarrá og byggðu annað veiðihús árið 1919 en það veiðihús stendur ekki lengur.

Í dag eru tvö fyrsta flokks veiðihús sem þjónusta Þverá/Kjarrá. Í báðum húsum eru verðlaunakokkar og vandað starfsfólk gerir sitt besta til að tryggja að dvöl þín verði eftirminnileg.

Heillandi veiðihús og matargerð

Veiðihús Kjarrár, Víghóll, er fallega staðsett á hæð við ánna með stórri verönd með frábæru útsýni yfir ánna og nágrenni hennar. Á pallinum eru sána og heitur pottur þar sem hægt er að slaka á eftir veiði dagsins. Að því loknu geta gestir notið þriggja rétta máltíðar sem verðlaunakokkar okkar hafa útbúið.  

Í húsinu er myndarleg setustofa og borðstofa, átta tveggja mannna svefnherbergi, hvert með bæði einkabaðherbergi og sturtu. Í húsinu er vöðluherbergi og geymsluaðstaða fyrir veiðigræjur og annan búnað. 

Kjarrá FAQ

Veiðimönnum er velkomið að deila stöngum svo lengi sem veiðireglum er fylgt og húsrúm leyfir.

Við getum aðstoðað veiðimenn við leigu á búnaði ef góður fyrirvari er gefinn. Einnig er hægt að kaupa flugur sem leiðsögumenn okkar hafa valið með ársvæði og aðstæður í huga hverju sinni.

Við biðjum veiðimenn vinsamlegast um að fylgja þeim mætingartímum sem teknir eru fram hér á síðunni og í bæklingum okkar og bókunarstaðfestingum svo starfsfólki okkar sé unnt að undirbúa komu þeirra á sem bestan máta og án óþæginda fyrir aðra gesti.

Það er alltaf hægt að læra eitthvað nýtt í veiðinni. Leiðsögumenn okkar búa yfir hafsjó af fróðleik sem getur nýst öllum við veiðar. Við mælum sérstaklega með því að veiðimenn bóki sér leiðsögumann í fyrsta skipti sem viðkomandi heimsækir nýtt ársvæði. Við getum útvegað leiðsögumenn í allar okkar ár með góðum fyrirvara.

Leiðsögumenn okkar sjá gestum fyrir akstri við ánna. Ef veitt er án leiðsögumanns í Kjarrá mælum við eindregið með því að veiðimenn notist við fjórhjóladrifna jeppa.

Kjarrá er afar afskekkt en eini vegurinn á svæðinu er sá sem viðhaldið er fyrir veiðimenn á sumri hverju. Hægt er að keyra að mörgum stöðum en aðrir krefjast þess að veiðimenn gangi að þeim.

Laxinn byrjar að ganga í neðri hluta árinnar Þverá fyrir alvöru í júní. Göngurnar ná hámarki um miðjan júlí og yfirleitt er það um það leiti sem flestir þeirra ganga alla leið upp í Kjarrá.

Fluguval fer auðvitað eftir vatnsmagni hverju sinni en árangursríkasta aðferðin að undanförnu hefur verið yfirborðsflugur líkt og Sunray Shadow, hitch eða aðrar smáflugur.

Svarið við þessari spurningu fer að sjálfsögðu eftir smekk hvers og eins en bæði Þverá og Kjarrá eru almennt taldar frábærar til einhenduveiði. Ef vatnsmagn er mikið getur verið gott að nota litla tvíhendu.

Fjarlægð frá Reykjavík
97,6 km

Aksturstími
Approx. 2 hour.

GPS
64°45’15.8″N 21°07’15.7″W

Spurningar?