Torfastaðir

Velkomin í
Torfastaði

Steinsnar frá Reykjavík rennur hin sögufræga á Sogið. Torfastaðir eru einstakt veiðisvæði með möguleika á laxi en fyrst og fremst frábærri bleikjuveiði.

Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við sales@starir.is

Almennar upplýsingar

Vatnsmikla áin Sogið er stærsta lindá landsins. Vatnið er mjög tært og rennur úr Þingvallavatni, stærsta stöðuvatni Íslands. Sogið er 19 kílómetrar að lengd, þar af eru 12 kílómetrar laxgengir. Skammt frá vatninu eru þrjár stíflur sem voru reistar um miðja 20. öld en þær voru fyrstu vatnsaflsvirkjanir landsins. Sogið rennur í gegnum fallegt og gróskumikið landslag í bland við ræktarland á vesturbakkanum og birkiskóg með fjölda sumarhúsa á austurbakkanum. Sogið endar síðan á að blandast við mjólkurlitað jökulvatn Hvítár.

Sogið hefur í áratugi verið vinsælt meðal íslenskra veiðimanna. Svæðið er frægt fyrir stórlax og þar að auki stóra og kraftmikla bleikju. Hið óspillta og tæra vatn Sogsins, með fjölbreyttum hyljum og löngum og spennandi breiðum, er tilvalið til fluguveiði á tvíhendum.

Þrjú veiðisvæði á vesturbakka Sogsins eru nú leigð af Störum og á þeim er einungis fluguveiði leyfileg. Þótt auðvelt sé að komast á suma staði með einhendum, annað hvort frá bakkanum eða með því að vaða, þá veita tvíhendur veiðimönnum betri yfirferð á flestum stöðum. Áin er breið og kraftmikil og því þurfa veiðimenn að fara mjög varlega á meðan þeir vaða og er veiðimönnum úthlutuð björgunarvestum sem við mælum eindregið með.

Veiðitímabil

Frá 1. apríl til 30. september.

Prime Time

Mid June to early August.

Við mælum með þessum flugum

Púpur, straumflugur og þurrflugur fyrir silung. Hefðbundnar laxaflugur fyrir laxinn.

Búnaður

Single-handed rods, floating lines and double-handed rods.

Veiðihús

Veiðimenn geta bókað gistingu í Alviðru eða Bíldsfelli. 

Bæði veiðihús eru fullbúin til sjálfsmennsku með uppábúnum rúmum og öllum þægindum. Leiðsögumenn og mat er hægt að bóka með fyrirvara.

Torfastaðir Beat FAQ

Veiðimönnum er velkomið að deila stöngum svo lengi sem veiðireglum er fylgt og húsrúm leyfir.

Við getum aðstoðað veiðimenn við leigu á búnaði ef góður fyrirvari er gefinn. Einnig er hægt að kaupa flugur sem leiðsögumenn okkar hafa valið með ársvæði og aðstæður í huga hverju sinni.

Það er alltaf hægt að læra eitthvað nýtt í veiðinni. Leiðsögumenn okkar búa yfir hafsjó af fróðleik sem getur nýst öllum við veiðar. Við mælum sérstaklega með því að veiðimenn bóki sér leiðsögumann í fyrsta skipti sem viðkomandi heimsækir nýtt ársvæði. Við getum útvegað leiðsögumenn í allar okkar ár með góðum fyrirvara.

Gott aðgengi er að ánni frá veginum og vegslóðum sem að henni liggja. Sogið er mikið vatnsfall og straumhörð á sem afar mikilvægt er að gæta að sér í ef vaðið er. Björgunarvesti eru í veiðihúsinu og við mælum með að allir veiðimenn noti þau og skilji við þau sómasamlega fyrir næstu gesti.

Fjarlægð frá Reykjavík
64 km.

Aksturstími
Approx. 57min

GPS
64.030659, -20.983274

Spurningar?