Bíldsfell

Velkomin í
Bíldsfell

Sogið er stærsta lindá Íslands og rennur úr Þingvallavatni, stærsta stöðuvatni landsins. Akstursfjarlægð frá Reykjavík er innan við klukkutími og er Sogið þekkt fyrir gróskumikið og fallegt umhverfi. Sogið er frægt fyrir stórlax og hefur í áratugi verið vinsælt hjá stangveiðimönnum.

Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við sales@starir.is

Almennar upplýsingar

Vatnsmikla áin Sogið er stærsta lindá landsins. Vatnið er mjög tært og rennur úr Þingvallavatni, stærsta stöðuvatni Íslands. Sogið er 19 kílómetrar að lengd, þar af eru 12 kílómetrar laxgengir.

The Sog is Iceland’s largest spring fed river, flowing though farmland and birch-forest from the famous Thingvallavatn-lake. In the last few decades, a number of anglers have caught their trophy salmon. Additionally, many have enjoyed casting flies for powerful char weighing up to 3 kg.

Sogið hefur í áratugi verið vinsælt meðal íslenskra veiðimanna. Svæðið er frægt fyrir stórlax og þar að auki stóra og kraftmikla bleikju. Hið óspillta og tæra vatn Sogsins, með fjölbreyttum hyljum og löngum og spennandi breiðum, er tilvalið til fluguveiði á tvíhendum. 

Hátt í tuttugu merktir veiðistaðir eru í Bíldsfelli en fyrir mörgum aðdáendum þess er það einfaldlega einn samfelldur veiðistaður þar sem laxinn getur haldið sig víða. 

Þrjú veiðisvæði á vesturbakka Sogsins eru nú leigð af Störum og á þeim er einungis fluguveiði leyfileg. Þótt auðvelt sé að komast á suma staði með einhendum, annað hvort frá bakkanum eða með því að vaða, þá veita tvíhendur veiðimönnum betri yfirferð á flestum stöðum. 

Áin er breið og kraftmikil og því þurfa veiðimenn að fara mjög varlega á meðan þeir vaða og er veiðimönnum úthlutuð björgunarvestum sem við mælum eindregið með.

Hægt er að keyra upp að flestum hyljum á fólksbílum.

Veiðitímabil

Lax frá 24. júní til 24. september.

Prime Time

Snemma í júlí fram í miðjan ágúst.

Við mælum með þessum flugum

Straumflugur, púpur eða þurrflugur fyrir bleikju og urriða. Hefðbundnar laxaflugur.

Búnaður

Einhendur, tvíhendur og flotlínur.

Veiðihús

Veiðimenn hafa aðstöðu í nýuppgerðu veiðihúsi við Bíldsfellsbreiðuna. Í húsinu eru fjögur tveggja manna herbergi, rúmgóð stofa og borðstofa mep stóru matarborði. Á verönd á suðurhlið veiðihússins er grill og matarborð. Björgunarvesti eru í boði fyrir veiðimenn.

Hægt er að panta þrif við brottför. Leiðsögumenn og mat er einnig hægt að panta með góðum fyrirvara.

Bíldsfell Beat FAQ

Veiðimönnum er velkomið að deila stöngum svo lengi sem veiðireglum er fylgt og húsrúm leyfir.

Við getum aðstoðað veiðimenn við leigu á búnaði ef góður fyrirvari er gefinn. Einnig er hægt að kaupa flugur sem leiðsögumenn okkar hafa valið með ársvæði og aðstæður í huga hverju sinni.

Það er alltaf hægt að læra eitthvað nýtt í veiðinni. Leiðsögumenn okkar búa yfir hafsjó af fróðleik sem getur nýst öllum við veiðar. Við mælum sérstaklega með því að veiðimenn bóki sér leiðsögumann í fyrsta skipti sem viðkomandi heimsækir nýtt ársvæði. Við getum útvegað leiðsögumenn í allar okkar ár með góðum fyrirvara.

Það er alltaf hægt að læra eitthvað nýtt í veiðinni. Leiðsögumenn okkar búa yfir hafsjó af fróðleik sem getur nýst öllum við veiðar. Við mælum sérstaklega með því að veiðimenn bóki sér leiðsögumann í fyrsta skipti sem viðkomandi heimsækir nýtt ársvæði. Við getum útvegað leiðsögumenn í allar okkar ár með góðum fyrirvara.

Gott aðgengi er að ánni frá veginum og vegslóðum sem að henni liggja. Sogið er mikið vatnsfall og straumhörð á sem afar mikilvægt er að gæta að sér í ef vaðið er. Björgunarvesti eru í veiðihúsinu og við mælum með að allir veiðimenn noti þau og skilji við þau sómasamlega fyrir næstu gesti.

Fjarlægð frá Reykjavík
71,8 km.

Aksturstími
Approx. 58min

GPS
65°28’29.8″N 20°31’22.1″W

Spurningar?